1.2.2009 | 18:15
"STARFSMAÐUR Á PLANI " Er utanríkisráðherra!! hmm
Já Össur sagði fyrir u.þ.b. viku að hann væri "einungis starfsmaður á plani " ég ætla bara að vona að hann átti sig á því að hann er starfsmaður þjóðar sem er i miklum vanda stödd ef hann á að vera nýji utanríkisráðherran okkar núna!!
Þetta er eina embættið sem ég er mjög smeik við að sjá hann í,, en ok ef hann stendur sig ekki þá rekum við hann bara!!! ekki satt yndislegu íslendingar!! Sjaldan hef ég verið eins stolt af því að vera frá íslandi og núna og get haldið hausnum hátt hér í útlandinu þessa dagana...
Allaveganna þetta eru massa breytingar sem vonandi verða til þess að enginn svelti þegar draslið kikkar inn fyrir alvöru..
Það er alveg á hreinu að það er ekki hægt að rugla neitt meira i þessari þjóð og þeir sem ættla að svíkja okkur og ljúga og stela verða bara reknir.. púnktur basta .. við fylgjumst með..
Svo nú er bara að þjóðnýta kvótann og allir út að veiða (samt ekki hvali)
Ást kossar og stolt !!!
http://visir.is/assets/doc/XZ57121.DOC her er verkefnaskráin .. we are watching!!!!
|
Slá skjaldborg um heimilin |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |



saxi
neytendatalsmadur
hallarut



Athugasemdir
Það er þannig fólk sem við þurfum - ekta manneskjur í gegn - Össur sem víðast.
---
Ég undrast hinsvegar mjög að nánasti trúnaðarmaður Björns Bjarnsonar skulu nú gerður dómsmálaráðherra í þessari ríkisstjórn.
Ráðuneytisstjóri Björns Bjarnsonar - innvígð og innmúruð - er það sá dómsmálaráðherra sem okkur vantaði? - Og munu ráðherrar þora að tala saman á ríkisstjórnarfundum með nánasta trúnaðarmann BB á fundum?
- Þetta er sú manneskja sem sá um að sitja á frumvarpinu um greiðsluaðlögun sem Jóhanna segir nú að sé mikilvægt fyrsta verk þessarar ríkisstjórnar að koma aftur á skrið.
- Hún sá líka persónulega um að undirbúa allar ákvarðanir Björns - hvernig á hún að geta endurkoðað sín egin mál ferkar en bankamennirnirl?
- Þetta er svo absúrd að það er hreinlega óskiljanlegt? - Andstætt öllu prinsipum og hæfis- og vanhæfisreglum.
- Og þetta er val Steingríms J.
- Hvað eiga BB og Davíð á Steingrím? - Því augljóslega er þetta ráðherra BB en ekki vinstriflokkanna.
Helgi Jóhann Hauksson, 1.2.2009 kl. 18:23
Heyrðu Helgi ég er bara alveg sammála þér (ekki alveg með össur samt ) .. ég vissi þetta ekki takk fyrir upplýsingarnar og flott hjá þér bloggið æðislegar myndir..
Bara reka þessa gellu hún fær bara ekki að vera dómsmálaráðherra ef þetta er satt og rétt!!!
Elín, 1.2.2009 kl. 18:42
Jæja nú bloggast bara ekki meira hjá mér það er eitthvað verið að ritskoða bloggið mitt!! hmm
reyni aftur á morgun
Elín, 1.2.2009 kl. 18:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.